top of page
Berber with his dromedary in the sahara desert in Morocco.jpg

Einstakar ferðir

til öðruvísi landa

Traust frá yfir 600 ánægðum viðskiptavinum síðan 2017

Young handsome man smiling dressed with summer clothes and a hat standing in front of La F

KOSTA RÍKA

Pura Vida

beautiful city in the atlas mountains of morocco.jpg

MAROKKÓ

 Töfraheimur ævintýra 

Photo of the ballons on the sunrise of Capadoccia.jpg

TYRKLAND

 Ævintýraheimur 

A pink car in Havana, Cuba park in front of an brown facade .jpg

KÚBA

 Perla Karíbahafsins 

FERÐAKLÚBBUR

Maggi og Dröfn

Maggi og Dröfn

Kosta Ríka febrúar 2025

Magnað er til þess að hugsa er heim var komið hvað þessir dagar rúlluðu ótrúlega hratt og áreynslulítið. Þetta var virkilega ánægjulegt ferðalag í alla staði. Alltaf var eitthvað skemmtilegt prógramm í gangi en þó var líka alveg hægt að slappa af inn á milli með kaldan á kantinum! Okkur finnst aðdáunarvert hvernig þeir Carlos og Guðni hafa prjónað saman svo fjölbreytta dagskrá sem gaf bæði skemmtilega og fræðandi innsýn í líf og starf heimamanna og ekki voru skoðunarferðirnar um landið með heimaleiðsögumanninum honum Alejandro síðri. Þá voru ferðafélagarnir einnig hver öðrum skemmtilegri, ógleymanleg ferð !Pura vida 🤗

Lesa meira

Bogusława og Piotr

Bogusława og Piotr

Kosta Ríka janúar 2025

Við höfum verið með þeim tvisvar, þau eru vel upplýst, mjög hjálpsöm, alltaf til staðar, brosandi, ég treysti þeim. Þeir koma fram við alla eins og fjölskyldu, núna hélt maðurinn minn upp á 60 ára afmælið sitt, það var frábært, líka þeim að þakka. Þar sem við gátum ekki farið til Marokkó var allt skipulagt þannig að við gætum fengið peningana okkar mjög skilvirkt og fljótt. Fyrirtækið #2goiceland er þess virði að mæla með, prófaðu það einu sinni og þú verður sáttur.

Lesa meira

Steen & Gudrun Marokkó ferð 2024

Steen og Guðrún Björk

Marokkó Jólaferð 2024

Við fórum í tvær ferðir með Guðna og Carlos árið 2024 – Fyrst um páskana til Kúbu og svo aftur um jólin til Marokkó. Óhætt er að segja að önnur eins upplifun er vandfundin og allt sem strákarnir skipulögðu var upp á punkt og prik og meira til. Vandað var virkilega til verka þegar gististaðir voru valdir, matur og ferðalög. Við getum ekki beðið eftir því að fara aftur í ævintýri með þeim. Hjartans þakkir elsku vinir fyrir að hugsa svona vel um okkur.

Lesa meira

Gudný & Jón

Guðný & Jón

Kosta Ríka nóvember 2024

Guðni og Carlos héldu vel utan um hópinn og voru úrræðagóðir. Gististaðir voru framúrskarandi og upplifun. Góð rúta og bílstjóri. Ágæt leiðsögn og öllum spurningum svarað. Gönguferð í regnskóginum frábær og hentaði öllum því farið var eftir góðum göngustígum og göngubrýrnar voru ævintýri út af fyrir sig. Það var gott að enda í rólegheitum við Kyrrahafið og bátsferð þar var frábær.

Lesa meira

Adam Óskarsson.jpeg

Adam & Hugrún

Kúba nóvember 2024

Mér er mjög ljúft að setja niður nokkrar línur sem ummæli um þessa góðu ferð. Hún var í alla staði frábær, mjög vel skipulögð og sérstaklega fróðleg. Ferðatilhögun algerlega til fyrirmyndar og leiðsögn og fararstjórn í hæsta gæðaflokki. Það var greinilegt að Guðni og Carlos voru vel kynntir allsstaðar þar sem við komum og gátu gefið ráð og upplýsingar á öllum sviðum.

Lesa meira

Hrefna, Kosta Ríka Mai 2024.heic

Hrefna Gunnarsdóttir

Kosta Ríka maí 2024

Frábær ferð með ótrúlega mörgum upplifunum alltaf eitthvað nýtt sem toppaði sig aftur og aftur Gönguferðir stuttar og auðveldar, sigling á snekkju sem var frábær. Skemmtilegt að upplifa rigninguna og þessa fallegu náttúru.

Lesa meira

Gudrun og Brynjólfur Kubuferdir

Guðrún og Brynjólfur

Janúarferð 2024

Þessi ferð var frábær samsetning af fræðslu um menningu, sögu, landslag, tónlist, list, vindla, romm ásamt góðu dassi af skemmtun, dansi og að leika sér. Síðastu þrjú atriðin voru gott mótvægi við upplifa raunstöðu kúbverja. Því við já upplifðum svon sannarlega alvöru Kúbu. Hinn barska raunveruleika sem kúbverjar búa við. Vanrækslu yfirvalda á öllum innviðum, fátækt fólksins og skort á öllu. Hið undarlega ríkisvald sem heldur fólkinu niðri með misgóðum valdsháttum. Við hjónin vorum ofboðslega ánægð með ferðina. Hópurinn var frábær og höfum við eignast nýja vini í kjölfarið. Dagurinn í Kanada á heimferð var frábær endir á stórbrotinni ferð. Guðni og Carlos fá okkar toppeinkunn. Þeir sáu ótrúlega vel um hópinn af einstakri umhyggju og gleði. Við mælum eindregið með þessari ferð.

Lesa meira

Fengum að sjá og upplífa Kúbu eins og hún raunverulega er en líka hvernig glansmyndin fyrir "túrista" á lúxuhótelum er.

Sólveig B. Magnúsdóttir

Nóvemberferð 2023

Frábær ferð í alla staði, hver dagur bar með sé ný og framandi ævintýri í landi sem ekki er svo auðvelt að heimsækja eða skilja. Fengum að sjá og upplífa Kúbu eins og hún raunverulega er en líka hvernig glansmyndin fyrir "túrista" á lúxuhótelum er. Fararstjórarnir og skipuleggjendurnir Guðni og Carlos fá 10+ fyrir að halda vel utan um hópinn, allt stóðst eins og stafur á bók og allt gert með svo mikilli hlýju og gamansemi. Ógleymanleg ferð, takk fyrir mig.

Lesa meira

Ferðin til Kúbu með Kúbuferðum var einstök upplifun

Bjartey

Páskaferð 2023

Ferðin til Kúbu með Kúbuferðum var einstök upplifun, undir dyggri leiðsögn Guðna og Carlosar, sem eru frammúrskarandi fararstjórar. Ferðin var bæði mjög fróðlega og á sama tíma mjög skemmtileg, með mikið af tónlistarupplifunum, bílferðum í gömlum "drossíum" og salsakennslu. Það sem stóð upp úr var samt sem áður þegar ferðast var út fyrir hefðbundin ferðamannasvæði, en þar kynntumst við hinni ekta Kúbu. Það var líka gott í lok ferðar að dvelja í tvo daga í rólegheitum á Varadero ströndinni, þar sem snorklferð með seglbáti stóð upp úr. Ég mæli eindrengið með ferð til Kúbu á vegum Kúbuferða.

Lesa meira

Allt við ferðina til Kúbu var frábært.

Marteinn, Vigdís og Ólíver

Páskaferð 2022

Allt við ferðina til Kúbu var frábært. Ferðaskipulag var til fyrirmyndar og allar tímasetningar og formsatriði hnökralaus hjá Carlos. Leiðsögn um hina raunverulegu Kúbu var frábær og blönduðust þar saman leiðsögn Guðna og kúbverska leiðsögumannsins Eddie - sagan, mannlífið þá og nú, fólkið, menning og listir, stjórnmál og náttúra ... öllu voru gerð góð skil og aldrei komið að tómum kofunum hjá þeim félögum. Gististaðirnir í "casas" í Havana og Casilda voru frábærir og gestgjafar þar yndislegir og hugmyndin að gista á svona stöðum frekar en hótelum gerir ferðina svo miklu áhugaverðari og maður nær að kynnast aðstæðum og fólki mun betur en ella. Gisting á Varadero resortinu og í Kanada var líka til fyrirmyndar. Skoðunarferðir og viðburðir sem voru hluti af ferðinni voru mjög áhugaverðir og gáfu góða innsýn inn í lífið á Kúbu.

Við mælum eindregið með þessarri ferð fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast Kúbu eins og hún raunverulega er. Svo var hópurinn okkar náttúrulega alveg til fyrirmyndar skemmtilegur :-)

Lesa meira

lgjört ævintýri frá upphafi til enda. Hver dagur öðrum skemmtilegri og lærdómsríkari.

Kobbi og Vallý

Febrúarferð 2020

Algjört ævintýri frá upphafi til enda. Hver dagur öðrum skemmtilegri og lærdómsríkari. Fararstjórn algjörlega til fyrirmyndar, ekkert hik, öllum spurningum svarað, hlýlegt og gott viðmót og góð öryggistilfinning. Rúsínan í pylsuendanum hjá okkur var að Þegar við pöntuðum þessa ferð hugsuðum við ekki úti að Vallý átti afmæli í ferðinni og við áttum líka Gullbrúðkaup þann dag 14 febrúar.

 

Þannig að þetta var eiginlega brúðkaupsferð fyrir okkur. Hefðum við ekki getað fengið betra tækifæri til að halda uppáþessa stóru daga. Aðal veisla ferðarinnar var meira að egja einmitt þenna dag. Sem sagt fullomlega sátt og sæl og gefum við Kúbuferðum, Guðna og Carlosi eigendum og fararstjórum, rútubílstjóranum og Yustel sem voru glaðir, brosandi og hressir allan tímann, okkar allra bestu meðmæli.

Bestu kveðjur. Jakob og Valgerður (Kobbi og Vallý)

Lesa meira

upplýsingar Kúbuferða og mínar væntingar í ljósi þeirra héldust allvel hönd í hönd

Unnur Birna Karlsdóttir

Marsferð 2019

Ferðin var ánægjuleg, fjölbreytt viðfangsefni og skemmtileg blanda af menningu, mat og náttúruskoðun. Eina sem var manni kannski erfiðast var hiti en það er ekki hægt að tjónka við það á suðrænum slóðum. Kostur var að líða ætíð eins og maður væri ekki óvelkominn í landinu og hafa tiltölulega góða öryggistilfinningu, og að skipulag og upplýsingar Kúbuferða og mínar væntingar í ljósi þeirra héldust allvel hönd í hönd.

Og nógu margt til að koma á óvart og vera öðruvísi og óvænt til að eftirvænting hélst ferðina á enda. Og dekrið á síðasta staðnum toppaði svo með tækifæri til að sinna félagslífi með ferðafélögum og að hvílast í restina eftir ferð um landið.

Lesa meira

Margrét íslenskVaradero var frábær staður og gott að eyða síðustu dögunum

Márgret og Steinar

Nóvemberferð 2018

Alveg frábær ferð í alla staði, fór langt fram úr væntingum. Mjög vel undirbúið og skipulagt hjá Guðna og Carlosi. Þeir eru svo þægilegir og skemmtilegir og voru meira eins og vinir okkar. Mikil upplifun og fróðleikur sem við lifum á lengi. Varadero var frábær staður og gott að eyða síðustu dögunum þar í að slappa af og njóta sólarinnar, en mikið missir fólk af Kúbu sem er bara þar. Að gista í heimagistingu og ferðast um eyjuna með fararstjórum sem eru frá Kúbu og hafa búið þar er mikil upplifun. Við ákváðum svo að eyða nokkrum dögum í Toronto í lokin og skipulögðu þeir fyrir okkur frábæran dag þar sem farið var m.a. að Niagara fossunum. Ferð sem fær fullt hús stiga frá okkur. Kærar þakkir fyrir okkur ❤️🇨🇺

Lesa meira

bottom of page